Leikfélag Akureyrar - LA

Súld og segulþræðir. Tvær tilnefningar til Grímunnar 2011, leikskáld ársins og leikmynd ársins.Tveimur aðkomukonum skolar upp á hið grámyglulega

auglysing.jpg

Súldarsker

Súld og segulþræðir

Tvær tilnefningar til Grímunnar 2011, leikskáld ársins og leikmynd ársins.
Tveimur aðkomukonum skolar upp á hið grámyglulega Súldarsker í ólíkum erindagjörðum. Koma þeirra setur samfélagið úr skorðum og hrindir af stað æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma gamlir vitaverðir, bæjarhátíðin Hryssingsdagar, árásargjarnir mávar, krullumót í félagsheimilinu og síðast en ekki síst leyndardómar hinnar ógangsettu kassettuverksmiðju sem gnæfir yfir samfélaginu.


Súldarsker er leikrit eftir Sölku Guðmundsdóttur sem frumsýnt var í Tjarnarbíói í janúar 2011 – ærslafull, tragíkómísk ráðgáta sem gerist í einangruðu bæjarfélagi sem á sér ógnvænlegt leyndarmál. Tvær leikkonur leika öll hlutverkin, sem eru samtals hátt í tuttugu talsins.

Höfundur
  • Salka Guðmundsdóttir
Leikstjórn
  • Harpa Arnardóttir
Leikmynd
  • Brynja Björnsdóttir
Lýsing
  • Egill Ingibergsson
Búningar
  • Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
Tónlist
  • Ólafur Björn Ólafsson
Leikarar
  • Aðalbjörg Árnadóttir
  • Maríanna Clara Lúthersdóttir
Förðun
  • Svanhvít Valgeirsdóttir
Texti Sölku er frábærlega saminn, þéttur, hæfilega vitsmunalegur og framúrskarandi hnyttinn. Þarna er fætt nýtt leikskáld sem bragð er að. (Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is)

Það er afar gleðilegt að í fámennan hóp ungra íslenskra leikskálda hafi nú bæst hæfileikaríkur og frjór höfundur. ... Þannig felur verkið í sér nokkuð smellna spennusögu sem spilar á ýmsar klisjur, nokkuð beitta ádeilu og heilmikið af húmor. Mér fannst sýningin hreint æðislega fyndin og brosti hringinn eins og flestir gestanna reyndar. ... Gamall vitavörður, úrillur umsjónarmaður, sjoppustelpa, listaspíra og kvenfélagskerling eru meðal þeirra sem leikkonurnar Aðalbjörg Árnadóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir galdra fram úr engu á sviðinu. Og þær eru báðar geysileg kameljón. Aðalbjörg er afar flink í þeirri kúnst að draga upp persónur með örfínu látbragði. Hún skilaði sínu fólki með eftirtektarverðri blöndu af alúð og grallaraskap. Maríanna Clara er afbragðs gamanleikkona með mikla útgeislun og frábærar kómískar tímasetningar á valdi sínu. ... Andrúmsloftið er magnþrungið á Súldarskeri, öðrum þræði gotneskt, grimmt og truflað og þar spilar tónlist Ólafs Björns Ólafssonar stóra rullu, sem og snilldarleg leikmynd Brynju Björnsdóttur sem Egill Ingibergsson ljósahönnuður gefur margfalda vídd (og hreinlega blæs lífi í). **** (Kristrún Heiða Hauksdóttir, Fréttatíminn)


**** (Elísabet Brekkan, Fréttablaðið)

Dúndur í Tjarnarbíói – myndi vilja leika í svona leikriti. ... Sem sagt, Salka Guðmundsdóttir, höfundur verksins, er auðvitað stjarna kvöldsins – en samt hugsa ég, að sagan hennar Sölku (sem er reyndar glæpasaga) hefði ekki skilað sér svona fullkomlega, nema af því að hún hefur gettgóðar konur í liði með sér. Ekki bara þessar dúndurleikkonur, sem Hollywood ætti að kaupa á nóinu, heldur hugmyndaríkan og útsjónarsaman leikstjóra, sem er Harpa Arnardóttir. Hver var að segja, að það vantaði góða leikstjóra á Íslandi? *** ½ (Bryndís Schram, Pressan)


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf