Hafnarstræti 57
600 Akureyri
Stórsveitin Hundur í óskilum fer í gegnum Íslandssöguna á hundavaði í tali og tónum. Nú hafa þeir félagar fengið snillinginn Benedikt Erlingsson leikstjóra sér til aðstoðar við að stíga skrefið til fulls upp á leiksviði í brjáluðum tónlistargjörningi með sögulegu ívafi.
Sýningin fékk stórkostlegar viðtökur þegar hún var sýnd hjá leikfélaginu fyrr í vetur og komust færri að en vildu. Nú býðst leikhúsgestum annað tækifæri á að sjá þessa tæru snilld!
Tónleikar hjá Hundi í óskilum hafa oft minnt meira á sirkus eða uppistand en venjulega tónleika. Haugur af hljóðfærum, eldúsáhöldum og ýmis konar verkfærum og hjálpartækjum gegnir þar tilviljunarkenndu hlutverki eftir því hvernig þeim Eiríki og Hjörleifi líður í það og það skiptið. Nú hafa þeir félagar fengið snillinginn Benedikt Erlingsson leikstjóra sér til aðstoðar við að stíga skrefið til fulls upp á leiksviði í brjáluðum tónlistargjörningi með sögulegu ívafi.
Saga þjóðar er samstarfsverkefni Hunds í óskilum og Leikfélags Akureyrar.
Handrit: Eiríkur Stephensen, Hjörleifur Hjartarson
Leikstjóri: Benedikt Erlingsson
Dramatúrg: Benedikt Erlingsson
Leikmynd: Dýri B. Hreiðarsson og Benedikt Erlingsson
Búningar: Íris Ólöf Sigurjónsdóttir
Lýsing og hljóðstjórn: Gunnar Sigurbjörnsson
Leikarar og söngvarar: Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson
Hljóðfæraleikarar: Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson