Leikfélag Akureyrar - LA

Loksins aftur eftir 15 ár!!. FRUMSÝNT 10. SEPTEMBER Í HOFI Í nýrri og glæsilegri uppfærslu LA  koma fram margir af bestu söngvurum og leikurum

auglysing.jpg

Rocky Horror

Loksins aftur eftir 15 ár!!

FRUMSÝNT 10. SEPTEMBER Í HOFI

Í nýrri og glæsilegri uppfærslu LA  koma fram margir af bestu söngvurum og leikurum landsins ásamt mögnuðum Geimverukór og Horror-bandinu.
Sýning LA á ROCKY HORROR verður fyrsta sýningin sem sýnd verður í Hofi, nýju Menningarhúsi á Akureyri og óhætt að lofa eftirminnilegri upplifun!
Forsala aðgöngumiða hefst 10. ágúst á www.leikfelag.is

Dreymdu ekki – Vertu! - og taktu september frá fyrir „show“ aldarinnar!

Rocky Horror er sett upp í samstarfi við Flugfélag Íslands og Valitor

 


Dr. Frank N Furter er á kafi í vísindatilraun, er að búa til hinn fullkomna mann; Rocky. Í stað þess að fá hjálp við að gera við bílinn endar hið unga siðsama par innilokað í vægast sagt undarlegu og stórhættulegu ævintýri. Rocky Horror er söngleikur sem fólk um allan heim dáir og elskar. LA er stolt af að sýna loksins þetta frábæra verk þar sem fram koma margir af bestu söngvurum og leikurum landsins.

Richard O’Brien skrifaði The Rocky Horror Show árið 1973 og verkið var frumsýnt 19. júní sama ár í London. Sýningin gekk í langan tíma og hefur verið sett upp víða um heim allar götur síðan og alltaf notið mikillar hylli. Árið 1975 var svo gerð kvikmynd eftir söngleiknum; The Rocky Horror Picture Show.

Geimverur! Litadýrð! Drag!
Rokk og Ról!

Þýðing
  • Veturliði Guðnason
Leikstjórn
  • Jón Gunnar Þórðarson
Leikmynd
  • Pétur Gautur Svavarsson
Lýsing
  • Björn Bergsteinn Guðmundsson
  • Freyr Vilhjálmsson
Búningar
  • Rannveig Eva Karlsdóttir
Danshöfundur
  • Steinunn Ketilsdóttir
Gervahönnun
Leikarar
Hljóðstjórn
Förðun

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf