Leikfélag Akureyrar - LA

Þau eru mætt aftur!. GESTASÝNING FRÁ BORGARLEIKHÚSINU Sýningin hefur frestast um tíma, af óviðráðanlegum orsökum. Það er unnið að því í samstarfi við

auglysing.jpg

Jesús litli

Þau eru mætt aftur!

GESTASÝNING FRÁ BORGARLEIKHÚSINU

Sýningin hefur frestast um tíma, af óviðráðanlegum orsökum. Það er unnið að því í samstarfi við Borgarleikhúsið að finna henni tíma nú á vordögum.   

Við erum stödd í Palestínu á því herrans ári núll. Rómverjar hafa sölsað undir sig landið og Heródes er settur landsstjóri. Þegar spyrst út að frelsari muni fæðast í landinu kemur tilskipun frá honum um að myrða skuli öll sveinbörn, tveggja ára og yngri. Ljótt er það. Hver fæðir eiginlega barn inn í slíkt ástand?


Öll vitum við að Jólaguðspjallið er einstaklega fallegt og hátíðlegt, en það er ekki síður átakanleg. Trúðarnir láta allt flakka, umbúðalaust. Þeim er ekkert óviðkomandi, þeir velta við öllum steinum, snúa öllu á hvolf og segja allan sannleikann – og ekkert nema sannleikann. Jafnvel þótt hann sé grimmur. Eða fyndinn.

Trúðar þeirra Halldóru Geirharðsdóttur og Bergs Þórs Ingólfssonar eru löngu orðnir landsþekktir, en í Jesús litla bætist trúðurinn hennar Kristjönu Stefánsdóttur, Bella í hópinn með himneska tóna í farteskinu.  

Dauðasyndirnar voru án efa ein eftirminnilegasta sýningin á íslenskum leikhúsfjölum á síðasta ári. Þar fluttu trúðarnir dásamlegu hinn Guðdómlega gleðileik Dantes – og fóru frjálslega með.  Nú snúa trúðarnir aftur og takast á við sjálft Jólaguðspjallið.
Leikstjórinn Benedikt Erlingsson hefur hemil á trúðunum eftir bestu getu og söngkonan Kristjana Stefánsdóttir töfrar fram himneska tóna með hjálp trúðsins Bellu.
Höfundur
  • Benedikt Erlingsson
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Halldóra Geirharðsdóttir
  • Kristjana Stefánsdóttir
Leikstjórn
  • Benedikt Erlingsson
Leikmynd
  • Snorri Freyr Hilmarsson
Lýsing
  • Magnús Helgi Kristjánsson
Tónlist
  • Kristjana Stefánsdóttir
Leikarar
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Halldóra Geirharðsdóttir
  • Kristjana Stefánsdóttir
Fyrri sýning trúðanna, Dauðasyndirnar var tilnefnd til fimm Grímuverðlauna, m.a. sem leiksýning ársins. Gagnrýnendur og áhorfendur héldu vart vatni, hér eru nokkrar umsagnir:

„Ég var alveg orðin tvöföld í sætinu af hlátri ... sýningin er dýrleg leikhúsreynsla“
Silja Aðalsteinsdóttir, TMM

„Sýningin er bráðfyndin og skemmtileg en með háalvarlegum tóni.“
Ingibjörg Þórisdóttir, Morgunblaðið

„Fyrsta flokks. Ekki missa af Dauðasyndunum.“
Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttablaðið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf