Leikfélag Akureyrar - LA

Barna- og fjölskyldusýning. Björn litli vaknar einn morgunn með horn á höfðinu. Hann fær Jórunni vinkonu sína til að hjálpa sér að komast að ástæðunni því

auglysing.jpg

Horn á höfði

Barna- og fjölskyldusýning

Björn litli vaknar einn morgunn með horn á höfðinu. Hann fær Jórunni vinkonu sína til að hjálpa sér að komast að ástæðunni því hann langar ekki að líta út eins og geit.  Í leit sinni að sannleikanum renna þau inn í atburðarrás á mörkum ævintýris og veruleika.

Horn á höfði er gestasýning frá Gral-leikhópnum í Grindavík.

Spennandi og fyndin barna- og fjölskyldusýning sem frumsýnd var sl. haust í Grindavík við frábærar undirtektir. Áhorfendur og gagnrýnendur voru sammála um að þetta væri eitt skemmtilegasta barnaleikrit ársins. Tónlistin er eftir Akureyringinn Villa Naglbít og eiga lögin úr sýningunni vonandi eftir að hljóma hátt í skíðabrekkunum í Hlíðarfjalli um páskana.

Sýnt í Rýminu. 

Höfundur
  • Bergur Þór Ingólfsson
  • Guðmundur Brynjólfsson
Leikstjórn
  • Bergur Þór Ingólfsson
Tónlist
  • Vilhelm Anton Jónsson
Leikmynd og búningar
  • Eva Vala Guðjónsdóttir
Leikarar
  • Sólveig Guðmundsdóttir
  • Sveinn Ólafur Gunnarsson
  • Víðir Guðmundsson

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf