Hafnarstræti 57
600 Akureyri
SÍÐASTA SÝNINGARHELGI GULLEYJUNNAR ER NÆSTA HELGI!
Látið þetta frábæra ævintýraleikrit ekki framhjá ykkur fara. Tryggið ykkur miða strax í dag!
Frægasta sjóræningjasaga allra tíma lifnar á sviðinu í þessari líflegu og bráðfyndnu leikgerð þeirra Karls Ágústs Úlfssonar og Sigurðar Sigurjónssonar.
Gulleyjan er ævintýraleg sýning fyrir alla
fjölskylduna, full af galdri, gulli, græðgi, bardögum, blekkingum, talandi
páfagaukum, kostulegum persónum og eldfjörugri tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson.
Lífið á sveitakránni tekur heldur betur stakkaskiptum þegar gamall sjóræningi gefur þar upp öndina og skilur eftir sig fjársjóðskort. Jim, sonur kráareigans, veit ekki fyrr til en hann er kominn langt suður í höf með skuggalegri áhöfn á seglskipinu Hispanjólu. Skipskokkurinn Langi-Jón Silvur er ekki allur þar sem hann er séður og leitin að fjársjóðnum verður fjörugri og hættulegri en nokkurn gat grunað. Þetta er ævintýraleg sýning fyrir alla fjölskylduna, full af galdri, gulli, græðgi, bardögum, blekkingum, talandi páfagaukum, kostulegum persónum og eldfjörugri tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Sýningin er sett upp af Leikfélagi Akureyrar í samstarfi við Borgarleikhúsið.
Gulleyjan eftir Robert Louis Stevenson er fyrsta sjóræningjasagan og sú frægasta og sagan sem öll sjóræningjaævintýri á bókum, í leikritum og kvikmyndum byggja á.
Sigurður Sigurjónsson snýr nú aftur til Akureyrar en síðasta sýningin sem hann vann hjá LA var ÓVITAR sem sló rækilega í gegn og kætti leikhúsgesti á öllum aldri.
Glæsilegur hópur listrænna stjórnenda vinnur að sýningunni: Leikstjórinn Sigurður Sigurjónsson, Snorri Freyr Hilmarsson sem hannar leikmynd, Agnieszka Baranowska og Júlíanna Lára Steingrímsdóttir hanna búningana, Björn Bergsteinn Guðmundsson hannar lýsingu og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson hefur hér enn sannað snilld sína með frábærri tónlist.
Sýningin er ekki við hæfi barna yngri en 5 ára.