Leikfélag Akureyrar - LA

Sýningar á Akureyri um páskana. FÚLAR Á MÓTI eru mættar aftur! Sýningar verða á MARÍNA (áður Oddvitinn) og 2. sýning er laugardagskvöldið 3. apríl kl.

auglysing.jpg

Fúlar á móti

Sýningar á Akureyri um páskana

FÚLAR Á MÓTI eru mættar aftur!

Sýningar verða á MARÍNA (áður Oddvitinn) og 2. sýning er laugardagskvöldið 3. apríl kl. 21.00. Húsið opnar kl. 20.00.

Á Marína er setið við borð og hægt að njóta ljúfra drykkja á meðan á sýningu stendur.

Sýningin Fúlar á móti var frumsýnd í febrúar 2009 á Akureyri og gekk fyrir fullu húsi þar. Sýningin var ein vinsælasta sýning á landinu um vorið þegar hún var sýnd í Íslensku óperunni í Reykjavík. 

 


FÚLAR Á MÓTI er breskt að uppruna - Grumpy Old Women Live! - Hér sýnt í íslenskri útfærslu Gísla Rúnars Jónssonar.

 Þær Edda, Helga Braga og Björk skauta af sinni alkunnu snilld í gegnum síðara skeiðið og gera óspart grín að sjálfum sér og öðrum. Nú fá karlmenn loksins að vita hvers vegna eiginkonur, systur og mæður þeirra eru eins og þær eru. Hér gefst einstakt tækifæri til að skyggnast inn í hugarheim Fúlla á móti.

Þetta er í fyrsta skipti sem þessar vinsælustu uppistandsleikkonur þjóðarinnar stíga saman á stokk. 

Hvað gerist þegar þessar fögru en viðsjárverðu dömur tipla saman um sviðið? Kviknar í þeim? Bíta þær áhorfendur?

Miðasala er í Samkomuhúsinu, Hafnarstræti 57, í síma: 4 600 200 og hér á heimasíðunni.

Leikstjórn
Leikmynd
  • Þórarinn Blöndal
Lýsing
Búningar
Hljóðmynd
Sviðshreyfingar
  • Sigyn Blöndal
Leikarar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf