Leikfélag Akureyrar
Hafnarstræti 57
600 Akureyri
Hafnarstræti 57
600 Akureyri
Fjalla Eyvindur sem frumsýndur var sl. leikár fékk afburða dóma og nokkrar Grímutilnefningar m.a. sem sýning ársins.
“Ég sá eitt sinn í draumi tvær mannverur, eina lögmál var ást þeirra. Þau voru hvort annars spegill. Í þeim spegli gat ekkert dulist.”
Leikritið Fjalla Eyvindur eftir Jóhann Sigurjónsson er byggt á samnefndri þjóðsögu og er ein af perlum íslenskra bókmennta.
Fjalla Eyvindur er ein magnaðasta ástarsaga íslensks leiksviðs og fjallar um stórar ástir og miklar fórnir, flókið samband karls og konu sem talar jafn mikið til okkar í dag og það gerði fyrir hundrað árum síðan.