Leikfélag Akureyrar - LA

. Leikhúsglaðningur fyrir alla fjölskylduna Gói og Þröstur Leó opna dyr leikhússins upp á gátt fyrir ungum sem öldnum, og ætla að ferðast um

auglysing.jpg

Eldfærin

Leikhúsglaðningur fyrir
alla fjölskylduna

Gói og Þröstur Leó opna dyr leikhússins upp á gátt fyrir ungum sem öldnum, og ætla að ferðast um töfraheim ævintýranna.


Í þetta sinn er það ævintýrið um Eldfærin eftir H.C. Andersen. Allar persónurnar munu birtast ljóslifandi, nornin, prinsessan, allir þorpsbúar og síðast en ekki síst hundarnir þrír með ógnarstóru augun. Enginn, sem kynnst hefur ógleymanlegum ævintýrum, ætti að láta sannkallaða töfrastund fram hjá sér fara.

Eldfærin er samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Baunagrassins.

Gói er Akureyringum að góðu kunnur enda var hann einn helsti burðarás LA á árunum 2005-2008 og lék mörg ógleymanleg hlutverk.

Höfundur
  • Guðjón Davíð Karlsson
Tónlist
  • Guðjón Davíð Karlsson
  • Vignir Snær Vigfússon
Leikmynd og búningar
  • Rannveig Eva Karlsdóttir
Leikarar
  • Guðjón Davíð Karlsson
  • Þröstur Leó Gunnarsson

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf