Landsbankinn og leikhúsið... fyrir unga fólkið!
Áskriftarkort fyrir unga fólkið
Sala Áskriftarkorta fyrir leikárið 2011-2012 hefst
12. september
Landsbankinn býður námsmönnum og ungu fólki upp á áskriftarkort í leikhúsið á niðursettu verði.
Námsmenn og allir undir 25 ára aldri fá áskriftarkortin á aðeins 6.000 kr!
Námufélagar fá kortið á 5.000 kr.!
Frá haustinu 2004 þegar LA og Landsbankinn buðu ungu fólki í fyrsta skipti áskriftarkort á kostakjörum hefur yngri leikhúsgestum fjölgað svo um munar hjá LA. Háskóla- og framhaldsskólanemendur hafa nýtt sér þetta einstaka tilboð og notið þess að sjá sýningar LA. Verkefnaskráin er valin sérstaklega með það fyrir augum að hún höfði til yngri leikhúsgesta ekki síður en þeirra sem eldri eru.
Þú færð öruggt sæti á:
- Svarta kómedían
- Gulleyjan
Og velur svo til viðbótar eina af eftirfarandi sýningum:
- Íslenski fjárhundurinn - saga þjóðar
- Fjalla Eyvindur
- Ótuktin
- Saknað
- Gyllti drekinn
- Afinn
- Súldarsker
- Lífsins karnival
- Eldfærin
Þú gengur frá kaupunum í miðasölu LA í Samkomuhúsinu, með því að hringja í síma 4 600 200, eða um
netfangið midasala@leikfelag.is.
Þú getur einnig fyllt út pöntun hér á heimasíðunni.
Þú færð kortið sent heim í pósti og getur hlakkað til spennandi leikhúsvetrar.
Fáðu áminningu í símann þinn!
Við bjóðum þeim kortagestum sem nota smáskilaboð (sms) að fá senda tilkynningu í símann tveimur dögum fyrir kortasýningu.














