Leikfélag Akureyrar - LA

Leikfélag Akureyrar er eina atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Það er rekið með stuðningi Akureyrarbæjar á grunni samnings við

Leikfélag Akureyrar býður ykkur velkomin

Leikfélag Akureyrar er eina atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Það er rekið með stuðningi Akureyrarbæjar á grunni samnings við Menntamálaráðuneytið. Saga Leikfélagsins spannar nú nær heila öld, en félagið varð atvinnuleikhús árið 1973. Starfsemin er í hjarta Akureyrar í fallegu nýuppgerðu leikhúsi, Samkomuhúsinu, sem tekur 210 manns í sæti. Samkomuhúsið er hefðbundið leikhús með sviði, upphækkuðum sal og svölum. Þann 16. febrúar 2006 opnaði leikhúsið nýtt leikrými sem það nefnir einfaldlega

Rýmið. Rýmið er svartur kassi sem hægt er að nýta á fjölda ólíka vegu. Leikhúsið sýnir einnig í öðrum rýmum bæði innan bæjarins en einnig í Reykjavík. Verkefnaskrá leikhússins hefur í gegnum tíðina verið fjölbreytt, klassísk íslensk og erlend verk, ný íslensk og erlend verk, barnaleikrit og söngleikir. Nú einbeitir leikhúsið sér að nútímaleikritun. Árlega sviðsetur leikhúsið fjórar til sjö leiksýningar á eigin vegum og í samstarfi við aðra auk ótal styttri sýninga og smærri viðburða. Fjöldi nýrra íslenskra verka hefur verið frumsýndur hjá leikhúsinu og listamenn leikhússins vinna reglulega með nýjum leikskáldum.  Fjöldi fastráðinna leikara er nokkuð breytilegur á milli tímabila en leikhópurinn hefur talið 4-11. Gestir leikhússins koma frá landinu öllu og í gegnum tíðina hefur verið vinsælt að fara í leikhúsferðir til Akureyrar til að sjá þær leiksýningar sem eru á boðstólum. Leikárið 2005-2006 var metár í sögu LA, þá sáu yfir 25.000 gestir sýningar leikhússins á Akureyri auk þess sem nálægt 20.000 gestir sáu sýningar LA í Reykjavík á árinu. Leikárið á eftir fjölgaði gestum enn og sáu rúmlega 27.000 gestir sýningar á Akureyri en yfir 12.000 gestir sýningu félagsins í Rvk. 

Fló á Skinni er aðsóknarmesta sýning í sögu LA en hana sáu yfir 15.000 gestir á leikárinu 2007-2008. Sýningar Leikfélags Akureyrar hafa hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna í gegnum tíðina. Auk uppsetninga leiksýninga þá leggur Leikfélag Akureyrar áherslu á leiklistarkennslu fyrir börn og unglinga. Það á í samstarfi við fjölda aðila, skóla og menntastofnana um námskeiðahald og leiklistarkennslu.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf