Leikfélag Akureyrar - LA

Leiklistarskólinn er fyrir fólk á aldrinum 8-15 ára. Sækja skráningablað hér Leikárið 2008-2009 stofnaði LA sinn eigin leiklistarskóla. Aðsóknin

Leiklistarskóli LA

Leiklistarskólinn er fyrir fólk á aldrinum 8-15 ára.

Sækja skráningablað hér

Leikárið 2008-2009 stofnaði LA sinn eigin leiklistarskóla. Aðsóknin fór fram úr björtustu vonum og þann vetur voru haldin tvö námskeið. 

Veturinn 2009-2010 fjölgaði nemendum mjög og voru um 70 nemendur við skólann á vorönn. Námskrá Leiklistarskólans er í sífelldri endurskoðun og í vetur mun hvor önn standa í 12 vikur og kennslustundin vara 90 mínútur, einu sinni í viku. Áfram verður náminu skipt upp í haust- og vorönn og hefst haustönnin 6. september.

Námið:

Leiklist:
Kennd er grunnfærni í leiklist. Farið í undirstöðuatriði í einbeitingu, trausti og tjáningu. Nemendur fá að spreyta sig jafnt á skrifuðum texta og spunavinnu og fá auk þess þjálfun í að standa á sviði. Hluti námsins fer síðan í að kynna aðra innviði leikhússins og munu gestakennarar koma í heimsókn. Nemendur fá einnig að líta inn á æfingar hjá Leikfélagi Akureyrar. Nemendum verður skipt í hópa miðað við reynslu, og hjá þeim nemendum sem voru á haustönn þyngist námið og verður viðameira.

Söngur:
Nemendur koma í smærri hópum í söngtíma þar sem kennd er létt söngtækni, öndun og raddbeiting. Nemendur æfa sig á léttum sönglögum og finna lag í samráði við kennara sem þeir vilja syngja í lokasýningunni - þó þarf enginn að syngja einsöng sem það ekki vill. Nemendur sem voru í skólanum á haustönn fá viðameiri verkefni og ítarlegra nám í sönglistinni.

Hvorri önn lýkur með nemendasýningu eða opnum tíma á sviði LA og er aðgangur ókeypis.

Kennarar við Leiklistarskóla LA í vetur eru:  Berglind Jónsdóttir og Jana María Guðmundsdóttir og Ásta Magnúsdóttir.

Námskeið fyrir fullorðna mun hefjast 20. september og í bígerð er einnig að bjóða upp á námskeið fyrir unglinga á aldrinum 16-20 ára.

Auglýst verður nánar í staðarmiðlum hvenær tekið verður á móti umsóknum í skólann á haustönn 2010.

 

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf