LA heldur úti öflugu barnastarfi.
Leiklistarskóli LA
LA hefur stofnað sinn eigin Leiklistarskóla fyrir börn á svæðinu. Sjá nánar um Leiklistarskóla LA undir: Námskeið.
Fjöldi skólabarna heimsækir leikhúsið ár hvert á skólatíma. Starfsmenn leikhússins geta í
flestum tilvikum tekið á móti börnum í stærri eða smærri hópum: Heimsóknir
Leikhúslíf – valgreinakennsla
Fyrir nokkrum árum hófst tilraunaverkefni um leiklist sem valgrein í grunnskólum Akureyrar í samstarfi við LA. Tilraunin hefur gengið vel og er orðin fastur liður í starfsemi LA. Nemendum í þremur efstu árgöngum grunnskóla býðst að velja leikhúslíf sem valgrein í eitt misseri. Nemendur koma vikulega í leikhúsið og kynnast ólíkum þáttum í starfsemi þess. Markmiðið er að veita þeim innsýn í lífið í leikhúsinu og hvernig leiksýning verður til.
Veturinn 2004-2005 komu allir krakkar í 8., 9., og 10 bekk á Eyjafjarðarsvæðinu í leikhúsið að sjáAusu. Heimsóknin var þeim að kostnaðarlausu og var sýningunni fylgt eftir í mörgum skólum af lífsleiknikennurum. Þetta er hluti að nýrri stefnu LA að leggja áherslu á unga fólkið og fá það í auknum mæli í leikhúsið og ala upp nýja kynslóð leikhúsgesta. LA vonast til að geta haldið áfram að bjóða skólabörnum í leikhús.
Sendið fyrirspurn á leikfelag@leikfelag.is eða hringið í síma:













