Leikfélag Akureyrar - LA

Áskriftarkort LA er ávísun á góðan vetur!   Ath. Sölu Áskriftarkorta fyrir yfirstandandi leikár lauk í byrjun nóvember. Með áskriftarkorti tryggir þú þér

Áskriftarkort

Áskriftarkort LA er ávísun á góðan vetur!

 

Ath. Sölu Áskriftarkorta fyrir yfirstandandi leikár
lauk í byrjun nóvember.


Með áskriftarkorti tryggir þú þér öruggt sæti á fjórar leiksýningar af fjölbreyttri vetrardagskrá LA. Verðið er ótrúlega lágt, þú færð áskriftarkortið á aðeins 7.900 kr en fullt verð er 14.300 kr. Með kaupum á áskriftarkorti sparar þú því um 45% og missir ekki af vinsælum sýningum.


Þú færð öruggt sæti á:

  • Lilja
  • 39 þrep 
  • Rocky Horror

Og velur svo til viðbótar eina af eftirfarandi sýningum:

  • Djúpið
  • Við borgum ekki, við borgum ekki
  • Íslenski dansflokkurinn
  • Lykillinn að jólunum
  • Fúlar á móti
  • Horn á höfði
  • Jesús litli
  • Óvissusýning

Sérkjör korthafa:
500 kr. afsláttur af öðrum miðum og gjafakortum hjá LA
500 kr. afsláttur af aðgöngumiðum í Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið og Íslensku óperuna
Bestu fáanlegu verðin á geisladiskum sem gefnir eru út í tengslum við uppsetningar LA
Forkaupsréttur að miðum á eina krónu á leiklestra LA í vetur
500 kr. afsláttur á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands

*Áskriftarkort fyrir unga fólkið

Landsbankinn og leikhúsið – fyrir unga fólkið
Áskriftarkort fyrir unga fólkið á aðeins 3.950 kr. Gildir fyrir 25 ára og yngri.

Landsbankinn greiðir niður áskriftarkort fyrir ungt fólk svo nú geta allir verið flottir á því og gerst fastagestir í leikhúsinu!

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf