Leikfélag Akureyrar - LA

Síðasta sýningarhelgi Gulleyjunnar Ævintýralegir páskar hjá LA Allt fullt á ævintýramorgunn Gulleyju ævintýramorgunn á skírdag! Yfir 5 þúsund gestir á

Fréttir

Næstkomandi helgi verður Gulleyjan sýnd í síðasta sinn hjá Leikfélagi Akureyrar.  Frumsýnt var í lok janúar og sýnt hefur verið á fullum krafti síðan. Sýningarnar verða því 45 talsins á 12 vikna tímabili þegar yfir lýkur. 

Upphaflega stóð til að hætta sýningum 21.mars en vegna mikillar aðsóknar var sýningartímabilið lengt um heilan mánuð. Um er að ræða sannkallaða fjölskyldusýningu því að ungir jafnt sem aldnir hafa hópast í Samkomuhúsið til að upplifa sjóræningjana um borð í Hispanjólu syngja og leika.

Auk hefðbundina sýninga hafa verið ýmsir aðrir viðburðir í kringum Gulleyjuna.  Á sýningartímabilinu hefur Leikfélag Akureyrar til að mynda boðið á fimmta hundrað grunnskóla- og leikskólabörnum í heimsókn þar sem þau fá að fara inn í leikmynd Gulleyjunnar, þeim sýnt baksviðs og hinum ýmsu leikhústöfrum verið uppljóstrað.

 Einnig hélt LA nýlega Gulleyju ævintýramorgunn þar sem börnum var boðið að koma og eiga góða stund með sjóræningjunum.  Oft hefur leikfélagið haldið slíka morgna og hafa þeir alltaf verið vinsælir, þó aldrei eins og þessi því salur Samkomuhússins troðfylltist og langur biðlisti myndaðist. Greinilegt var að sjóræningjarnir hafa skapað sér sess í hjörtum barna á svæðinu.

 Síðast en ekki síst má nefna að vegna Gulleyjunnar hafa sjóræningjafánar verið áberandi á flaggstöngum Akureyringa sem hafa dregið fána á hún sjóræningjunum til heiðurs.  Sérstaklega hvatti leikfélagið bæjarbúa til að flagga um frumsýningarhelgina og þegar fimmþúsundasti gesturinn kom á sýninguna í byrjum mars.

 Leikfélag Akureyrar vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hafa tekið þátt í Gulleyjuævintýrinu með þeim þar meðtaldir eru samstarfsaðillar þeirra úr Borgarleikhúsinu, styrktaraðillar sem og listamenn og aðrir aðstandendur sýningarinnar.  Síðast en ekki síst skal leikhúsgestum þakkað fyrir vægast sagt stórkostlegar viðtökur.

 



Ćvintýralegir páskar hjá LA

 Það var mikið um að vera hjá okkur um páskana. Á skírdag var Gulleyju-ævintýramorgunn í Samkomuhúsinu þar sem krökkum var boðið að koma og eiga þar sjóræningjastund. Þarna stigu á stokk nokkrar persónur úr Gulleyjunni, spjölluðu við krakkana og sungu fyrir þau lög úr leikritinu. Húsið troðfylltist og langur biðlisti myndaðist. Greinilegt var að sjóræningjarnir hafa skapað sér sess í hjörtum barna á svæðinu því að mikil kátína og gleði ríkti í leikhúsinu þennan dag.


Stórhljómsveitina Hund í óskilum þarf vart að kynna fyrir landsmönnum enda eru þeir Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson þekktir fyrir bráðfjöruga tónleika þar sem þeir spila á ógrynni af hljóðfærum. Tónleikhúsverkið, Saga þjóðar, fékk stórkostlegar viðtökur þegar það var sýnd hjá leikfélaginu fyrr í vetur og komust færri að en vildu. Þeir hafa síðan þá ferðast með það suður í Borgarleikhúsið þar sem þeir flytja það hvað eftir annað fyrir fullum sal. Leikhúsgestum á Akureyri bauðst annað tækifæri á að sjá þessa tæru snilld um páskana því þá voru þeir með tvær aukasýningar í Samkomuhúsinu og mættu fjölmargir til að nýta sér það tækifæri.

Einnig voru margar sýningar á Gulleyjunni um helgina og fullt hús á hverja sýningu. Nú fer hver að verða síðastur að sjá þetta vinsæla fjölskylduleikrit því að aðeins ein sýningarhelgi er eftir!
Gulleyjan er samstarfsverkefni LA og LR.

 Einn ástsælasti leikari þjóðarinnar Sigurður Sigurjónsson mætir í Samkomuhúsið 12. og 13. apríl með sprenghlægilega einleikinn Afann. Þetta íslenska leikverk er framleitt af þeim sömu og gerðu Hellisbúann og Pabbann og er óhætt að segja að Afinn slái öllu við. Í verkinu er fjallað á gamansaman hátt um hlutverk afans sem er á besta aldri, í góðri stöðu, búinn að ala upp börnin sín en þá blasa við önnur verkefni eins og flóknar fjarstýringar, Viagra töflur og ekki síst – barnabörnin. Afinn er samstarfsverkefni Thorsson Productions og LR. Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið bætt inn aukasýningum 21. og 22. apríl.



Allt fullt á ćvintýramorgunn

Mikill áhugi hefur verið fyrir Gulleyju ævintýramorgni sem verður í Samkomuhúsinu að morgni skírdags. Símalínur hafa verið rauðglóandi síðustu daga og mikill fjöldi af tölvupósti hefur borist frá fólki sem vill skrá sig og börnin sín. Nú leyfir húsrúm ekki fleiri gesti og hefur því verið stöðvað fyrir skráningu.

Kærar þakkir fyrir áhugann kæru skipsfélagar!

Bestu kveðjur,
starfsfólk LA



Gulleyju ćvintýramorgunn á skírdag!

Kæri leikhúsvinur,

Það verður Gulleyju ævintýramorgunn í Samkomuhúsinu á fimmtudaginn klukkan 11:00 (Skírdag).

Ungir sjóræningjar eru hvattir til að koma og eiga góða stund með okkur. Aldrei að vita nema að einhverjir leynigestir mæti á svæðið. Harr harr!

Ókeypis aðgangur. Hlökkum ofboðslega mikið til að hitta þig og láttu okkur vita hvort þú kemur með því að senda póst á midasala@leikfelag.is. Ath það er takmarkaður fjöldi sem kemst að.

Kær kveðja,

Leikfélag Akureyrar


Yfir 5 ţúsund gestir á Gulleyjuna

Föstudagskvöldið 2.mars sýndum við sjóræningjaleikritið Gulleyjan í 25.sinn. Viðtökurnar hafa verið hreint út sagt frábærar því uppselt hefur verið á hverja einustu sýningu og eru gagnrýnendur sammála um að Gulleyjan sé þrælskemmtilegt og kröftugt fjölskylduleikrit.

5 þúsundasti sýningagesturinn var á meðal þeirra sem komu þetta kvöld og reyndist það vera Sigríður Kristín Sverrisdóttir frá Skriðu í Hörgársveit. Starfsmenn okkar færðu henni blómvönd, Gulleyju bol og geisladisk, auk þess var Sigríði boðið að heilsa upp á leikarahópinn eftir að sýningu lauk.

Það mátti sjá sjóræningjafána blakta vítt og breytt um bæinn í þessu tilefni.

Leikritið er sett upp í samstarfi við Borgarleikhúsið og eru sýningar í fullum gangi í Samkomuhúsinu á Akureyri.



Fimmţúsund gestir á Gulleyjuna

Nú er 6.sýningarhelgi Gulleyjunnar að ganga í garð. Hingað til hefur verið uppselt á hverja einustu sýningu og eru gagnrýnendur sammála um að Gulleyjan sé þrælskemmtilegt og bráðfjörugt fjölskylduleikrit.

Föstudagskvöldið 2.mars er von á 5 þúsundasta sýningargestinum og mun Leikfélag Akureyrar taka á móti honum með pomp og prakt. Um leið vill Leikfélagið þakka öllum 5000 áhorfendum Gulleyjunar fyrir frábærar viðtökur og bjóða næstu 5000 velkomna.

Áhöfnin á Hispanjólu vill hvetja bæjarbúa til að taka þátt í gleðinni með því að flagga sjóræningjafánum líkt og gert var um frumsýningarhelgina. 



Öskudagur 2012

Á Öskudaginn leiða Leikfélag Akureyrar og Norðurorka saman hesta sína og bjóða uppá kattarslag á leikhúsflötinni kl.10:30.

Í Samkomuhúsinu verður tekið vel á móti öllum syngjandi kátum sjóræningjum og landkröbbum. Krökkum verður boðið upp á svið til að syngja Öskudagssöngva og samkeppni verður um flottasta búninginn.

Það lið sem slær tunnuna fær fjóra miða á Gulleyjuna

Það lið sem slær köttinn fær fjóra miða á Gulleyjuna

Sá sem vinnur búningasamkeppnina fær tvo miða á Gulleyjuna



Sjáumst skipsfélagar. Harr harr!




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf